Tókýó | borg, capital city of country (en)

Japan / Tokio / Tokyo /
 borg, invisible (en), capital city of country (en)

Tókýó (japanska: 東京, Tōkyō, framburður (uppl.)) er höfuðborg Japans og einnig stærsta borg landsins. Höfuðborgarsvæði Tókýó er einnig það stærsta í heimi en um 33.750.000 manns eiga heima þar og þar af eiga 12.000.000 manna heima í sjálfri borginni þó fólksfjöldinn sé töluvert meiri þar sem mikill fjöldi fólks stundar vinnu og viðskipti innan hennar.
Í borginni eru óvenju fáir skýjakljúfar miðað við aðrar stórborgir en það útskýrist að mestu leyti af byggingareglum vegna jarðskjálfta. Hús eru yfirleitt ekki hærri en 12 hæðir en Tókýó Midtown er stærsti skýjakljúfur borgarinnar, 248 m hátt. Tókýó-turn er hinsvegar hæsta mannvirki borgarinnar en hann er 333 m hár.

Google panorama: goo.gl/maps/4UwM5QEtp1apRHsP9
Coordinates:   35°40'3"N   139°44'29"E
Array