Surtsey
Iceland /
Sudurland /
Vestmannaeyjar /
World
/ Iceland
/ Sudurland
/ Vestmannaeyjar
Pasaulis / Ísland / Suðurland
ey, eldfjall, nature conservation park / area (en), uninhabited island (en), UNESCO World Heritage Site (en)
Surtsey er syðsta eyjan í Vestmannaeyjaklasanum, en miðpunktur hennar er 63°18'N, 20°36'V. Hún er jafnframt sú eina þeirra sem hefur myndast á sögulegum tíma, eða í mesta neðansjávareldgosi á sögulegum tíma. Menn urðu gossins varir klukkan 7:15 að morgni þess 14. nóvember 1963, þegar það braust upp úr yfirborði sjávar skammt frá fiskibátnum Ísleifi II frá Vestmannaeyjum. Skipverjar mældu sjávarhita í hálfrar mílu (rúmlega 900m) fjarlægð og reyndist hitastigið vera nálægt 10°C. Gosið magnaðist hratt og varð hár gosmökkur. Næsta morgun sást í gosmekkinum að eyja hafði myndast. Er því ljóst að gosið hefur hafist einhverjum dögum áður en þess varð vart. Þann 12. nóvember fannst brennisteinslykt í lofti í suðvestanátt í Vík í Mýrdal, en engra jarðhræringa hafði orðið vart dagana fyrir uppkomu gossins. Gosið stóð fram til 5. júní 1967 eða í um það bil þrjú og hálft ár. Síðan þá hefur flatarmál eyjunnar minnkað úr 2,7 km2 í 1,4 km2 sökum rofs sjávar og vinda.[1] Eyjan er um 20 km suðvestur af Heimaey, eða um 30 km suðvestur af Landeyjasandi á meginlandi Íslands.
Surtsey hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá 7. júlí 2008.
Surtsey er friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá, umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni. Surtseyjarfélagið hefur eyjuna í umboði umhverfisstofnunar.
Surtsey hefur verið á heimsminjaskrá UNESCO frá 7. júlí 2008.
Surtsey er friðlýst, og er því á náttúruminjaskrá, umferð þangað er aðeins leyfð í vísindaskyni. Surtseyjarfélagið hefur eyjuna í umboði umhverfisstofnunar.
Wikipedia article: http://is.wikipedia.org/wiki/Surtsey
Nearby cities:
Coordinates: 63°18'14"N 20°36'15"W
- Heimaey 22 km
- Geldinganes 114 km
- Bessastaðanes 114 km
- Viðey 115 km
- Hjörsey 162 km
- Brokey 220 km
- Málmey 308 km
- Hrísey 321 km
- Brismilsnes 328 km
- Papey 345 km
- Vestmannaeyjar 14 km
- Barnaskóli Vestmannaeyja 22 km
- Sagnheimar 22 km
- Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum 22 km
- Vínbúðin Vestmannaeyjum 23 km
- Ráðhús Vestmannaeyja 23 km
- Eldfell 23 km
- Bónus 23 km
- Sjúkrahús vestmannaeyjar 23 km
- Viðlagafjara 24 km