Wikimapia is a multilingual open-content collaborative map, where anyone can create place tags and share their knowledge.

Qassiarsuk

Greenland / Narsaq / Qassiarsuk /

Byggðakjarninn Qassiarsuk er í botni Tunuliarfik-fjarðar (sem á dönsku er nefndur Skovfjorden en Grænlendingar hinir fornu nefndu Eiríksfjörð) þar sem Eiríkur rauði settist að um 985. Þá nefndist bærinn Brattahlíð og lá í miðri Eystribyggð. Fjölmargar rústir og bæjarstæði eru enn að sjá í Qassiarsuk og nágrenni frá tíma norrænna manna á Grænlandi.
Sauðfjárrækt er aðal atvinnurekstur í þorpinu. Á seinni árum hafa ferðamenn lagt leið sína í auknum mæli til Qassiarsuk, enda hentar svæðið vel til gönguferða.
Qassiarsuk er um 3 km frá Narsarsuaq.
Nearby cities:
Coordinates:   61°9'11"N   45°31'6"W
  •  465 km
Array