Persaflói

Qatar / as-Samal / ar-Ruways /
 water (en), bay (en), invisible (en)

Persaflói (persneska: خلیج پارس, arabíska: الخليج الفارسي) er flói sem teygist í vestur inn af Ómanflóa á milli Írans (Persíu) og Arabíuskagans. Persaflói tengist Ómanflóa um Hormússund. Í vestri liggja árósar Sjatt al-Arab sem er mynduð úr samruna ánna Tígris og Efrats. Flóinn er 989 kílómetrar að lengd. Hann er grunnur og nær aldrei meira en 60 metra dýpi.
Coordinates:   27°7'0"N   51°56'16"E
Array