Langisjór
Iceland /
Sudurland /
Kirkjubaejarklaustur /
World
/ Iceland
/ Sudurland
/ Kirkjubaejarklaustur
Pasaulis / Ísland / Suðurland
vatn
Add category
Langisjór er 27 km² stórt stöðuvatn í Vestur-Skaftafellssýslu, suðvestan við Tungnár- og Skaftárjökul. Það er í 670 m hæð og mesta vatnsdýpi er 75 m. Sunnan við Langasjó er Sveinstindur en austan hans eru Fögrufjöll. Þau ganga víða með þverhníptum klettahöfðum fram í Langasjó. Langisjór er meðal tærustu fjallavatna á Íslandi. Á fyrri hluta tuttugustu aldar rann kvísl úr Skaftá í vatnið og þá var það jökullitað. Nafn sitt dregur vatnið af lengd sinni en það er um 20 km langt í stefnu norðaustur - suðvestur og 2 km breitt. Affall Langasjávar nefnist Útfall og rennur í Skaftá. Vegna þess hve afskekkt vatnið er fannst það ekki fyrr en á 19. öld. Nú fara ferðamenn að Langasjó í auknum mæli en það er auðvelt að ganga kringum vatnið. Gaman er að ganga á Fögrufjöll auk þess sem hægt er að ganga með þeim mörgu vötnum eða lónum sem leynast milli fjallanna. Stundum hefur ferðafólk siglt á gúmmíbátum á Langasjó og hefur þá verið vinsælt að sigla kringum eyjuna Ást í Fagrafirði. Fiskur er í vatninu og þar er stunduð stangveiði.
Wikipedia article: http://is.wikipedia.org/wiki/Langisjór
Nearby cities:
Coordinates: 64°10'10"N 18°18'31"W
- Haugёynguhrёyn 35 km
- Sylgjujökull 35 km
- Skeiðarárjökull 52 km
- Grímsvötn 54 km
- Bárdarbunga 65 km
- Kerlingarfjöll 69 km
- Vatnajökull 84 km
- Dyngjujökull 86 km
- Trölladyngja (Ódáðahrauni) 95 km
- Askja 125 km